Íbúð á Laugavegi 42 til leigu

Falleg 3ja herbergja íbúð á Laugavegi 42 er til leigu. Komið inn í forstofuhol þaðan er gengið inn í tvær fallegar og rúmgóðar stofur, milli þeirra eru rennihurðir. Hægt að nýta aðra stofuna sem rúmgott svefnherbergi. Eldhús er með snyrtilegri innréttingu. Rúmgott svefnherbergi. Baðherbergið er flísalagt með baðkari og sturtu. Mikil lofthæð og rósettur í lofti. Góð sameign.